Pronet er sérhæft fyrirtæki á sviði fjarskiptalausna. Við höfum áratugareynslu við uppbyggingu á ljósleiðarakerfum og öðrum fjarskiptakerfum, bæði á Íslandi sem og erlendis.
Starfsmenn Pronet eru meðal brautryðjenda á sviði ljósleiðaratækni á Íslandi, og hafa komið að uppbyggingu helstu ljósleiðarakerfa landsins.
Með hágæðabúnaði til tenginga og mælinga á ljósleiðurum, er ekkert verk okkur ofviða á þessu sviði, hvort sem það er hönnun kerfis eða uppsetning og tenging á grunnneti.
Pronet rekur öfluga framkvæmdadeild með starfsmönnum sem hafa viðamikla reynslu úr tæknigeiranum. Tækjabúnaður okkar samanstendur af nýjustu og bestu tækjum sem völ er á, og starfsmenn okkar eru þrautþjálfaðir i þvi að leysa öll verkefni, stór sem smá, hvort sem verkefnið er að byggja nýtt kerfi, eða mæla, taka út eða viðhalda eldri kerfum.
Hjá okkur er lögð rik áhersla á að veita viðskiptavinnum okkar sem allra besta þjónustu.
Pront býður " turnkey" lausnir fyrir fjarskiptakerfi af öllum stærðum og gerðum.
Heildsala/smásala:
Pronet rekur öfluga heildsölu/smásölu, og flytur m.a. inn efni fyrir lagna- og netkerfi, verkfæri, raftæki o.sv.frv. Styrkur okkar felst í að bjóða vörur á mjög hagstæðu verði, en kannski ekki síður að vörurnar sem við seljum eru valdar af fagmönnum með umtalsverða reynslu.
Heildarlausnir:
Hjá Pronet getur þú fengið alla þjónustu sem varðar lagningu og tengingu ljósleiðara, netkerfa hjá fyrirtækjum og stofnunum, uppsetningu loftnetskerfa og gervihnattadiska, uppsetningu á öryggiskerfum fyrir fyrirtæki, heimili og sumarhús, uppsetningu öryggismyndavéla ofl. Að sjálfsögðu bjóðum við efni og vörur i verkið á betra verði en gengur og gerist.